Jamón!

Friday, March 30, 2007

Okei tjill eda eitthvad

Sidasta helgi var mega. For a Disney skautasyningu a fostudagskvoldinu sem var aedi! Hun var reyndar oll a spaensku en tad synir bara hversu god eg er ordin tvi eg skildi bara helling. Tok lika slatta af myndum tangad til ad mer var sagt ad taka flassid af en eg veit ekkert hvernig eg fer ad tvi en eg nadi nokkrum godum. Svo var tust feitt djamm eftira a edal stad sem heitir Sound. Tad a eftir ad taka sma tima ad venjast tvi ad eg get ekki bara labbad inn alls stadar og keypt af barnum tegar eg kem heim......A sunnudeginum for eg i ferd med 5 ordum stelpum ur skolanum til torps sem hetir Nerja sem er klukkutima rutuferd fra El Palo. Tetta er alveg otrulega fallegt litid torp og tad var alveg morandi i turistum. Vid forum a strondina og lagum i 3 klst. innan um kletta i fullkomnu logni og eg fekk sjuklega leim ass tan tvi eg var ad lesa blad. Svo for eg med 2 stelpunum i hellina sem Nerja er tekkt fyrir og tad var ekkert sma flott!
Franski gaurinn sem eg by med er ad fara a morgun, sem er alveg frekar sorglegt tvi hann er svo hryllilega tanadur alltaf labbandi um ber ad ofan.....
Nuna a eg mandud eftir og aetla einmitt ad fara ad gera eitthvad turistalegt um helgina tannig tad verdur kannski ekki jafn langt i naesta blogg ef einhver vill lesa tad tad er tvi eg er alveg frekar lelegur bloggari.

Tuesday, March 20, 2007

Otrulegt

Loksins get eg skrifad blogg en alltaf tegar eg fer a blogger.com ta er tetta alltaf a spaensku tannig eg skil ekki baun. Tetta var ekkert mal i tetta sinn, eg er greinilega ad laera eitthvad herna!
Eg by i uthverfi sem heitir El Palo sem er 20 min. straetoferd fra midbae Malaga ef einhver er buin ad gleyma hvar eg er. Eg by i ibud med 3 odrum krokkum. Stelpu fra Englandi, stelpu fra Sudur-Koreu og gaur fra Frakklandi sem finnst mjog gaman ad labba um i engu nema handklaedi eda stuttermabol og trongum boxers. En tad er svo sem ekkert slaemt, hann er nu einu sinni i itrottahaskola.....
Tetta er allt voda fint folk og tad er mjog gaman ad fara a bari med teim og einum islenskum gaur og annari breskri gellu sem eru lika i skolanum.
Skolinn er lika finn. Voda litill og fullur af Tjodverjum en kennararnir eru godir og tolinmodir fyrir utan eina frekar gamla konu sem horfir a mann med fyrirlitningar svip ef madur spyr hana ad einhverju. Tad getur verid treytandi.
Vedrid er lika super og tad er buid ad vera meria en 20 gradur alveg sidan eg kom. Tad er lika einstaklega gaman fyrir ykkur ad vita ad um leid og eg er buin ad skrifa tetta blogg aetla eg uta strond tvi tad eru 25 gradur nuna! Vaaaaa

Saturday, November 04, 2006

Á fimmtudaginn kom ég aftur til New York en ég er búin að vera í tvær vikur í Atlanta hjá henni Stínu minni. Það var alveg frábært í alla staði þótt við vorum í úthverfunum allan tímann. Ég hefði alveg getað verið þarna lengur því þott við fórum ekki í miðbæ Atlanta þá gerðum við alveg heilan helling. Við fórum í rússíbanagarð sem heitir Six flags over Georgia og það var alveg voðalega gaman þangað til við þurftum að koma okkur heim en heimleiðin tók 4 klukkutíma því við þurftum að taka tvær lestir og tvo strætóa! Það var frekar leim og við vorum ekki voða hressar eftir það.
Svo hitti ég alla vini hennar sem voru alveg einstaklega hressir og skemmtilegir og í einu partíi með bosníksum vinum Stínu hittum við svertingja sem spilar fótbolta með Þrótti og gat spjallað við okkur smá á íslensku og núna er hann að stalka Stínu.
Við fórum líka á 3-D sýningu Nigthmare before christmas og það var ekkert smá flott. Ég var náttúrulega hjá Stínu yfir halloween og við fórum trick og treating í úthverfinu að ekta amerískum sið. Stína og ég vorum í búningum og með Victoria's secret poka sem urðu nánast fullir á 40 mínútum og við hámuðum í okkur langt fram á nótt.

Núna er ég New York og tvær frænkur Brians eru líka í heimsókn. Gærdagurinn var æði, við löbbuðum um Chinatown, Little Itlay, SoHo og The Village og fórum út að borða á ótrúlega góðum New Orleans veitingastað þar sem við fengum að taka með okkur helling af mardi gras perlufestum. Klukkan 8 fórum við síðan á Broadway sýningu sem heitir Avenue Q og aðalpersónurnar eru einhverskonar Sesame streat brúður. Þetta var ekkert smá fyndin og flott sýning.
Í dag ætlum við að fara á Wall street og nánasta umhverfi og líka í Meatpacking district, það verður gaman þótt það sé alveg ískalt úti.

Tuesday, October 17, 2006

Ég hef ekkert sérstakt spennandi að segja, ætlaði bara að monta mig aftur og segja við þá sem halda að þeir eiga eitthvað í mig að ég sá annað celeb í gær.
Ég og Brian vorum að labba í central park í gær eftir fínan dag í Central park zoo þegar gaurinn sem lék Mark Greene, eða Anthony Edwards, úr ER labbaði framhjá okkur eins og ekkert var. Ég veit alveg að hann er hættur í ER en ég man vel spennuni í síðasta þættinum sem hann lék í.
Annars er ég að fara til Atlanta á fimmtudaginn, eldsnemma um morguninn að hitta hana Stínu mína. Það verður fjör. Ég verð þar í tvær vikur og það verður partí á hverju kvöldi, ég finn það á mér.

Friday, October 06, 2006

Hæ,

Ég og Stína vorum í Little Italy í dag og þar sáum við engan annan en Ryan Reynolds!! Það var verið að taka upp mynd sem heitir Definitely, Maybe þannig við vorum þar þegar þið sjáið þá mynd. Fyrir þá aula sem vita ekki hver hann er þá er það gaurinn úr Van Wilder, Blade 3 (sjúklega massaður og hot) og Two guys and a girl.
Við sáum líka gaur sem var ekki með neitt eyra á hægri helming andlitsins. Það var fríkí. Svo vorum við að labba meðfram götu þar sem voru ekkert nema veitingastaðir og allir þjónarnir stóðu úti og kölluðu á okkur "Bella, bella are you hungry?" Það var ekkert voða kúl því þeir voru margir gamlir...
En já, aðalmálið með þessu bloggi er að ég sá celeb í dag og ekki þið!

Tuesday, October 03, 2006

San Fransisco!

Já það er rétt, ég var í San Fransisco, Kaliforníu um helgina með Óla og Brian! Það var alveg ótrúleg gaman. Við lentum um 6-leytið í San Fran og náðum í sweet silfurlitaðan blæjubíl sem við vorum með í leigu yfir helgina og keyrðum á voða fínt hótel í suðurhlutanum. Á laugardeginum byrjuðum við á því að taka blæjuna niður og keyrðum yfir Golden Gate brúna inní lítið fjallasvæði með æðislegu útsýni yfir borgina. Eftir það fórum við í Muir Woods sem er ótrúlega fallegur skógur sem er algjörlega óspilltur og tréin þar eru ekkert smá stór. Stærstu tréin í skóginum eru af sömu tegund og huge ass búturinn sem er í Háskólabíó hjá sal 4 ef ég man rétt.
Eftir að hafa brunað hraðbrautina komumst við inn í bæinn og skruppum í hommahverfið sem er troðið af flottum búðum og hommum útum allt og ég sá meira að segja dragdrottningu labbandi útá götu. Þetta hverfi var án efa mjög fabulous!
Á sunnudeginum fórum við í kínahverfið sem er stærra en það sem er í New York og þar var fullt af frábærum búðum og fallegir hlutir. Eftir það keyrðum við um voða lengi og ég gat ekki fengið nóg af því að skoða öll húsin sem voru nákvæmlega eins og maður ímyndar sér: marglituð og með fallegum útskorningum. Við keyrðum í gegnum gamla hippahvefið og þar voru fullt af skrýtnum búðum, meðal annars svartagaldursbúð og spákonur. Eftir það fórum við upp á Twin Peaks og þar var stórkostlegt útsýni yfir alla borgina sem er ein stór lengja. Við borðuðum síðan kvöldmat á stað sem heitir Happy Hunter og þar fékk ég mýkstu steik sem ég hef fengið á ævi minni. Namminamm.
Á mánudeginum fór ég með Brian í dýragarðinn því Óli var farinn en það var dálítið svekkjandi því það var verið að endurnýja garðinn og hann var hálf tómur. Það er samt alltaf gaman að fara í dýragarða og ég sá samt nóg af sætum dýrum :D
Ég kom aftur til New York í gær og núna er ég að bíða eftir að Stína komi í heimsókn en það gerir hún á fimmtudaginn!

Thursday, September 28, 2006

Þá er ég komin til New York! Þótt ég sé varla búin að vera hérna í sólarhring þá er ég samt búin að gera helling.
Fyrst lenti ég í smá basli hjá tollinum og ég hélt að tollvörðurinn ætlaði ekki að hleypa mér inn í landið því það var ekki búið að stimpla passann minn síðast þegar ég kom til Bandó og hann var að reyna að kenna mér um það. Hneyksli! Hann hristi hausinn og smjattaði tyggjóið á meðan hann fletti í gengum passann og horfði síðan geðveikt ásakandi á mig og fór eitthvað að böggast en hann hleypti mér þó í gegn að lokum. Ég varð samt dálítið stressuð.
Brian náði í mig á flugvöllinn og við vorum varla komin inn í íbúðina áður en við fórum að versla. Ég keypti voða fína boli í Urban outfitters og aðra þáttaröð af Sponebob (þetta var kl. 9 um kvöldið) og svo borðuðum við kínverskt með Neal og Dan sem eru vinir Óla og Brian. Það var voða hresst og þegar við komum heim fórum ég og Brian að horfa á Spongebob og þessi þáttaröð er algjör snilld! Ég kem bókað með allar þáttaraðirnar heim!
Í dag fórum við Brian í Bronx zoo í algjöru ljúfveðri og vorum bara rétt að koma aftur í íbúiðna en við vorum í dýragarðinum í 6 klukkutíma. Þetta er huge garður og ótrúlega flottur en það besta var þegar við komum að górillulandinu þá sat ein górillan svo nálægt glerinu að ef glerið hefði ekki verið hefði hún getað snert mig og svo horfði hún beint í augun á mér! Það var magnað! :D
Á morgun er ég síðan að fara i óvissuferðalag, en ég er að fara að fljúga eitthvert með Brian þar sem við munum hitta Óla og við verðum á leynistaðnum fram á mánudag. Mér dettur í hug að við séum að fara til San Fransisco því það eina sem ég veit er að það er fullt að sjá og þetta er staður sem ég mun hafa gaman af! En núna ætla ég að fara að pakka og horfa á Spongebob